Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni, en tveir voru með 2. vinning og fær hvor þeirra rúmar 127 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Hollandi og Þýskalandi. Sjö miðaeigendur voru með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 20,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Noregi og sex í Þýskalandi.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins en þrír voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir hjá Sbarro, Suðurfelli 4 Reykjavík, Lotto.is og Lotto appinu.