Enginn náði að krækja í 1. vinning að þessu sinni en einn var með 2. vinning og fær hann rúmlega 256 milljónir. Miðinn var keyptur í Danmörku. Þrír skiptu með sér 3. vinningi og fær hver um sig rúmar 48 milljónir, miðarnir voru allir keyptir í Þýskalandi.
Enginn var með 1. vinning í Jóker en tveir náðu að landa 2. vinningi og fá 100,000 krónur í vinning, annar miðinn er í áskrift en hinn var keyptur í appinu.