Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni en tveir heppnir miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og fær hvor þeirra rúmar 129.5 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Noregi og Þýskalandi. Þá voru sjö miðahafar með 3. vinning og fá þeir tæpa 21 milljón króna hver. Fjórir miðanna voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Svíþjóð og einn í Noregi.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins en heppinn áskrifandi var með 2. vinning og fær hann 100.000 krónur í vasann.