Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í EuroJackpot í kvöld. Hins vegar voru sjö miðarhafar með 3. vinning og var þar á meðal einn heppinn miðahafi á Íslandi sem keypti miðann sinn á Olís Ánanaustum. Þá voru tveir miðar voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Noregi, einn í Króatíu og einn í Svíþjóð. Vinningshafarnir fá allir rúmar 19,1 milljónir króna.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en einn miðahafi var með 2. vinning og hlýtur hann 125 þúsund krónur í vinning. Miðinn var keyptur á lotto.is.