Fréttir

lotto

vikinglotto

Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir

10. Jun 2026, 15:21

Það hefur verið nóg um að vera hjá Íslenskri getspá að undanförnu og nú hafa tveir skemmtilegir vinningshafar með stóra potta og áhugaverðar sögur að baki bæst í hóp heppinna milljónamæringa.

Annar þeirra er rúmlega fimmtug amma sem hefur verið með Lottótölurnar sínar í áskrift um árabil. Tölurnar eru henni kærar, enda byggja þær á afmælisdögum barna hennar og barnabarna, og hefur hún alltaf tengt þær við gæfu og góða tíma. Sú trú reyndist vel þegar í ljós kom að hún var með allar tölurnar réttar og hafði þannig unnið rúmar 11,6 milljónir króna. Hún hafði ekki hugmynd um vinninginn þegar góðu fréttirnar bárust með símtali sem kom skemmtilega á óvart.

Ekkill hafði heppnina með sér í appinu þótt hann væri lítið fyrir tölvur og tækni.

Hinn hlaut þriðja vinning í Vikinglotto, að upphæð 9,8 milljónir króna. Sá er rúmlega sjötugur og keypti miðann sinn í Lottóappinu. Hann viðurkenndi fúslega að vera lítið fyrir tölvur og tækni en sagði appið hafa komið sér á óvart og var enga stund að læra á það. Vinningshafinn missti konuna sína á síðasta ári og þegar hann keypti miðann bað hann hana í hálfkæringi um að senda sér nú Lottóvinning. „Og svo sannarlega gerði hún það í þetta sinn, þessi elska,“ sagði hann og brosti breitt.

Starfsfólk Íslenskrar getspár hefur það skemmtilega hlutverk að slá reglulega á þráðinn til nýrra vinningshafa með góð tíðindi. Hvort sem það eru langþráðar lukkutölur eða óvæntir vinningar þá virðist heppnin vera með Íslendingum þessa dagana og gleðin alltumlykjandi. Allir vinningshöfum fá innilegar hamingjuóskir og allir spilarar þakkir um leið fyrir veittan stuðning. Hann skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk sem og íþrótta- og ungmennafélög um land allt, þar sem þau njóta góðs af öllum þeim ágóða sem Lottó gefur af sér.

vikinglotto

Vikinglotto - úrslit 7. október

Hvorki 1., 2. né hinn al-íslenski 3. vinningur gengu út í Vikinglotto að þessu sinni. Engin var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins en fjórir miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur í vinning. Þrír miðar eru í áskrift og einn var keyptur á lotto.is

lotto

Áskrifendur með 1. vinning í Lottó og í Jóker!

Einn heppinn áskrifandi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær rúmlega 12,2 milljónir króna. Þá skiptu tveir miðahafar með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 215 þúsund krónur í vinning. Báðir miðarnir voru keyptir í Lottó appinu. Þá var heppinn áskrifandi einn með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og f... Lesa meira

vikinglotto

Vikinglottó - Einn með 1. vinning!

Einn heppinn miðahafi frá Finnlandi var með 1. vinning í Vikinglotto kvöldsins og fær hann rúmar 562,3 milljónir krónur í sinn hlut. Þá var einn Norðmaður með  2. vinning sem færir honum rúmar 30,9 milljónir krónur. Tveir skiptu með sér hinum al-íslenska 3. vinning og fær hvor þeirra rúmar 860 þúsund krónur. Miðarnir v... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Heppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmar 10 milljónir króna. Miðann góða keypti hann í Olís í Mjóddinni. Þá voru tveir miðahafar sem skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra 379 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn miðinn var keyptur... Lesa meira

lotto

Kona á níræðisaldri vann tæpar 130 milljónir á laugardaginn

„...og einn Lottómiða. Sjálfval!“ bætti hún við áður en sonur hennar skaust inn í Fjarðarkaup til að kaupa nokkrar helgarvörur fyrir móður sína. Þessi Lottómiði breytti svo sannarlega miklu og bætti þessari heppnu frú í hóp þeirra fjölmörgu Íslendinga sem hafa orðið milljónamæringar í Lottó síðastliðin 40 ár. Miðinn gó... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir