Fyrsti vinningur gekk ekki út í útdrættinum þetta þriðjudagskvöld en einn stálheppinn miðahafi í Svíþjóð var með 2. vinning og fær hann rúmar 186 milljónir króna. Tveir miðahafar voru með 3. vinning og fær hvor þeirra rúmar 52,4 milljónir króna í sinn hlut. Einn miði var keyptur á Spáni og hinn í Póllandi.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en einn miðahafi var með 2. vinning og fær hann 100.000 krónur. Miðinn var keyptur á heimasíðu okkar, lotto.is.
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 2.122.