Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins í EuroJackpot en tveir heppnir miðahafar voru með 2. vinning og fær hvor þeirra rétt rúmar 130 milljónir króna í vinning. Miðarnir voru keypir í Þýskalandi og Póllandi. Þá voru sex miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra tæpar 24,5 milljónir í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir á Spáni, í Grikklandi, Svíþjóð, Ungverjalandi og tveir miðanna í Þýskalandi.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en þrír miðahafar voru með 2. vinning og hlýtur hver þeirra 100.000 krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Bitahöllinni á Stórhöfða, í Lotto appinu og á vef okkar lotto.is.