Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út að þessu sinni en átta miðhafar voru með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 13 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Slóveníu, tveir í Finnlandi, tveir í Noregi og tveir miðanna í Þýskalandi.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fær hvor þeirrra 100.000 krónur. Annar miðinn var keyptur á vef okkar lotto.is en hinn miðinn er í áskrift.