Fyrsti vinningur gekk ekki út í kvöld en fimm heppnir miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 750,4 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Hollandi, Þýskalandi, Noregi, Spáni og Finnlandi. Átta miðahafar skiptu svo með sér 3. vinningi og fær hver þeirra rúmar 44,2 milljónir króna í sinn hlut. Tveir miðar voru keyptir í Svíþjóð og sex miðar voru keyptir í Þýskalandi.
Enginn var með allar tölur réttar í Jóker kvöldsins en einn var með 2. vinning og fær hann 100 þúsund krónur í vinning. Miðinn var keyptur á lotto.is.
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 4.416.