Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot útdrætti kvöldsins en heppnin var með þremur miðahöfum sem höfðu 2. vinning að þessu sinni og hlýtur hver þeirra rúmar 51,8 milljónir. Tveir miðar voru keyptir í Þýskalandi og einn í Hollandi. Þá voru alls fimm miðar með 3. vinning en það voru fjórir miðaeigendur í Þýskalandi og einn í Ungverjalandi. Fær hver þeirra rúmar 17,5 milljónir í sinn hlut.
Enginn var með 1. vinning í Jóker að þessu sinni en tveir voru með 2. vinning sem telur 100 þúsund krónur, báðir miðarnir eru í áskrift.