Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út þennan föstudaginn en sex spilarar skiptu á milli sín 3. vinningi og fær hver þeirra rétt tæpar 28 milljónir. Tveir miðanna voru keyptir í Finnlandi, tveir í Þýskalandi, einn í Danmörku og einn í Tékklandi.
Einn var með 2. vinning í Jóker og fær hann 100 þúsund krónur, miðinn var keyptur í Olís í Borgarnesi.