Fréttir

getraunir

Hattarmenn með 1.3 milljónir á Enska seðilinn

14. Oct 2024, 15:01

Það voru stuðningsmenn Hattar á Egilsstöðum í hópnum Dos Samsteypan sem fengu 13 rétta á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag og unnu rúmlega 1,3 milljónir króna. Þeir notuðu sparnaðarkerfi 7-2-489 þar sem þeir þrítryggðu 7 leiki, tvítryggðu 2 leiki og 4 leikir voru með einu merki. Kerfið gekk upp og eru þeir Hattarmenn 1.3 milljón krónum ríkari.

 Í mörg ár hefur Höttur á Egilsstöðum haldið úti öflugu getraunastarfi sem byggist á því að hópar sem tengjast félaginu keppa sín á milli í deildarkeppni yfir veturinn. Alls taka 20 lið þátt í deildarkeppninni sem stendur yfir í allan vetur. Þess má geta að Dos Samsteypan sem var með 13 rétta var í næstneðsta sæti deildarinnar fyrir umferðina um síðustu helgi þannig að það er oft stutt milli hláturs og gráturs.

getraunir

Tveir hjá ÍFR með 13 rétta

Þrír tipparar voru með 13 rétta á laugardagsseðlinum í Getraunum og fær hver þeirra rúma milljón króna í sinn hlut. Einn seðillinn var keyptur í félagakerfi Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík og  vinningsseðill númer tvö var keyptur af stuðningsmanni Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík. Má því segja að félagsfólk ÍFR ha... Lesa meira

getraunir

Getraunaseðlar á meðan á HM stendur

HM seðlar á mánudögum koma í stað Sunnudagsseðlanna í Getraunadeildinni. Allir HM seðlar eru með 65 milljónir tryggðar fyrir 13 rétta.

getraunir

Tipparar á skotskónum

Sá óvenjulegi atburður átti sér stað á sunnudags getraunaseðlinum að sami tipparinn var með alla leikina 13 rétta á tveim getraunaseðlum. Tipparinn sem styður Þrótt í Reykjavík fékk því í sinn hlut tvöfalda vinningsupphæðina eða rúmlega 700 þúsund krónur. Tveir tipparar voru með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum síðast... Lesa meira

getraunir

Sunnudagsseðill lokar á laugardegi

Tipparar athugið að lokunartíma getraunaseðlanna í þessari viku og þeirri næstu verður víxlað. Þannig lokar Sunnudagsseðillinn laugardaginn 16. maí  og Enski seðillinn sem lokar venjulega á laugardegi, lokar ekki fyrr en sunnudaginn 17. maí. Er þetta gert þar sem umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram á sunnudeginum... Lesa meira

getraunir

Þrír með 13 rétta í Enska

Þrír glúrnir tipparar voru með 13 leiki rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og fá þeir í sinn hlut um 650 þúsund krónur. Einn tipparanna styður við bakið á Fjölni, annar við Víking og sá þriðji styður Breiðablik.

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir