Tveir tipparar hjá Hetti Egilsstöðum voru á skotskónum um helgina þegar þeir fengu báðir 13 rétta. Annar tippaði á Enska seðilinn á laugardaginn og hinn daginn eftir á Sunnudagsseðilinn. Tipparinn sem tippaði á Enska seðilinn og fékk 13 rétta fékk 9,4 milljónir í sinn hlut og var að vonum ánægður. Hann heyrði svo í félaga sínum hjá Hetti á laugardagskvöldinu og sagði frá vinningnum og hvaða kerfi hann hafði notað. Félaganum leist svo vel á kerfið að hann notaði það til að tippa á Sunnudagsseðilinn og viti menn, hann fékk líka 13 rétta og 2.7 milljónir í sinn hlut. Kerfið árangursríka er R 9-0-1081 þar sem fjórir leikir eru með einu tákni og níu leikir með þrem táknum og Ú merki. Seðillinn kostaði 14.053 krónur.Þess má geta að báðir tippararnir taka þátt í getraunadeild Hattar en þar keppa 20 lið um meistaratitilinn og leika tvöfalda umferð á sama hátt og leikið er í ensku úrvalsdeildinni. Alls skipa 70 - 80 manns þessi 20 lið. Tipparinn sem fékk 13 rétta vann sinn leik í getraunadeildinni með 13 réttum gegn 10 réttum andstæðinganna.
Tengdar fréttir
eurojackpot
Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í EuroJackpot í kvöld. Þrír skiptu með sér 3. vinning og fá þeir rúmar 33,9 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Noregi og Ungverjalandi. Jókerinn gekk ekki út í kvöld en einn var með 2. vinning og fær sá 125 þúsund krónur. Miðinn var keyptur á lotto.is.
Tveir tipparar hjá Hetti Egilsstöðum voru á skotskónum um helgina þegar þeir fengu báðir 13 rétta. Annar tippaði á Enska seðilinn á laugardaginn og hinn daginn eftir á Sunnudagsseðilinn. Tipparinn sem tippaði á Enska seðilinn og fékk 13 rétta fékk 9,4 milljónir í sinn hlut og var að vonum ánægður. Hann heyrði svo í fé... Lesa meira
lotto
Potturinn verður tvöfaldur næsta laugardaginn þar sem enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins.Þrír skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 136 þúsund krónur. Tveir miðar eru í áskrift en sá þriðji var keyptur í Lottó appinu. Jókerinn hélt sér inni en sex miðar voru með 2. vinning og fær hver mi... Lesa meira
eurojackpot
Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í EuroJackpot í kvöld. Hins vegar voru sjö miðarhafar með 3. vinning og var þar á meðal einn heppinn miðahafi á Íslandi sem keypti miðann sinn á Olís Ánanaustum. Þá voru tveir miðar voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Noregi, einn í Króatíu og einn í Svíþjóð. Vinningshafarnir fá allir ... Lesa meira
lotto
Páskaleikur
Tveir heppnir skiptu með sér 176,5 milljóna Lottópotti Glæsilegur 7-faldur pottur var í Lottó um páskana og nam fyrsti vinningur alls 176.505.440 krónum. Tveir heppnir miðaeigendur skiptu með sér pottinum og fá hvor um sig rúmlega 88,2 milljónir króna. Vinningshafarnir keyptu miðana sína í Lottóappinu, en 40 ára aldurs... Lesa meira