Norðmenn unnu keppnina í þriðjudags - EuroJackpot þegar einn þeirra gerði sér lítið fyrir og vann allan pottinn sem var margfaldur og nam 17.850.000.000 króna.
Níu miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hlaut hver þeirra rúmlega 356 milljónir króna, einn miðinn var keyptur í Danmörku, einn í Slóveníu og sjö víðsvegar um Þýskaland. Síðan voru 15 spilarar sem skiptu með sér 3. vinningi og fær hver um sig rúmlega 18,4 milljónir króna, tveir lentu í Danmörku, einn í Póllandi og tólf dreifðu sér um Þýskaland.