Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni en heppinn Þjóðverji var einn með 2. vinning og fær hann rúmar 254 milljónir króna í sinn hlut. Þá voru fjórir miðahafar sem skiptu með sér 3. vinning og hlýtur hver þeirra tæpar 36 milljónir króna.Tveir miðanna voru keyptir i Þýskalandi, einn í Danmörku og einn í Noregi.
Þrír voru með 2. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Einn miðanna var keyptur í Olís í Norðlingaholti, einn í Lottó appinu og sá þriðji er í áskrift.