Fyrsti vinningur gekk ekki út í kvöld en 3 miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 101,4 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Tékklandi, Svíþjóð og Póllandi. Sjö miðahafar voru með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 24,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Svíþjóð, Póllandi, tveir í Noregi og þrír í Þýskalandi.
Einn heppinn áskrifandi var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins og fær hann 2 milljónir króna í vinning. Þrír voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir á N1 á Akranesi, lotto.is og einn er í áskrift.
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 3.389.