Einn var með allar tölur réttar auk Víkingatölunnar og fær hann því óskiptan 1. vinning sem var að upphæð kr. 3.723.750.000, miðinn var keyptur í Noregi. Enginn náði að landa 2. vinningi en tveir skiptu með sér hinum al-íslenska 3ja vinningi og hlýtur hvor þeirra rúmlega 1,8 milljón króna. Annar miðinn var keyptur hjá N1 í Reykjanesbæ en hinn í appinu.
Af Jóker er það að segja að einn var með allar tölurnar réttar og í réttri röð og hlýtur þar af leiðandi 1. vinning sem nemur 2 milljónum króna. Miðinn er í áskrift. Þá voru þrír með 2. vinning og fær hver um sig 100 þúsund kall, tveir miðanna voru keyptir í appinu og einn á lotto.is