Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins en fjórir heppnir miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 84,9 milljónir króna í sinn hlut. Einn miði var keyptur í Danmörku og þrír í Þýskalandi. Sjö miðahafar voru með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 27.3 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Svíþjóð, Póllandi, Finnlandi, tveir í Þýskalandi og tveir í Noregi.
Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins en einn miðahafi var með 2. vinning og fær 100 þúsund krónur í vinning. Miðinn var keyptur í Kjörbúðinni, Vesturvegi 1 á Seyðisfirði.
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 3.033.