Enginn náði að landa 1. vinningi kvöldsins en þrír náðu í 2. vinning og fékk hver þeirra vinning upp á rúmar 158 milljónir króna, tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn í Ungverjalandi. Tveir skiptu með sér 3. vinningi og fær hvor um sig rúmlega 80,3 milljónir, annar miðinn var keyptur í Þýskalandi og hinn á Spáni.
Jóker kvöldsins lét lítið fyrir sér fara en hvorki 1. né 2. vinningur gengu út.