Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni en tveir miðaeigendur skiptu með sér 2. vinningi og fær hvor þeirra rúmlega 100 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Hollandi og á Ítalíu. Þá voru sex með 3. vinning og fær hver þeirra tæpar 19 milljónir króna í sinn hlut. Tveir vinningsmiðanna voru keyptir í Þýskalandi en hinir í Danmörku, Króatíu og Slóveníu.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en þrír voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Mini market, Smiðjuvegi 2 í kópavogi, N1 á Höfn í Hornafirði og á vef okkar lotto.is