Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins en þrír heppnir miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra rúmar 92 milljónir króna. Tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn í Danmörku. Þá voru þrír miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rétt rúmar 52 milljónir króna, tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn í Noregi.
Einn stálheppinn áskrifandi var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum og fær hann tvær milljónir króna í vasann. Einn var með 2. vinning í Jóker kvöldsins og fær hann 100.000 krónur í sinn hlut. Miðinn var keyptur á vef okkar, lotto.is.