Fréttir

getraunir

Getraunaseðlar um hátíðar

19. Dec 2023, 15:31

Getraunaseðlar og Getraunadeildin verða með aðeins breyttu sniði yfir hátíðar heldur en venjulega.  Það verða tveir Enskir getraunaseðlar í viku 52. Annarsvegar þriðjudaginn 26. desember og hinsvegar laugardaginn 30. desember.  Seðillinn 26. desember kemur í stað Sunnudagsseðils í Getraunadeildinni og gilda úrslitin úr þeim seðli.
Planið er svona: 

Laugardagur 23. des. Enski seðillinn, leikvika 51, telur í lokaumferð 10 í hópleik. 

Þriðjudagur 26. des. Enski seðillinn nr 1, leikvika 52, telur í lokaumferð 10 í hópleik í staðinn fyrir Sunnudagsseðilinn.  Risapottur upp á 350 milljónir.

Miðvikudagur 27. des. Opnað verður fyrir sölu á Enska seðlinum nr.2 sem er laugardaginn 30. des.

getraunir

Tveir hjá ÍFR með 13 rétta

Þrír tipparar voru með 13 rétta á laugardagsseðlinum í Getraunum og fær hver þeirra rúma milljón króna í sinn hlut. Einn seðillinn var keyptur í félagakerfi Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík og  vinningsseðill númer tvö var keyptur af stuðningsmanni Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík. Má því segja að félagsfólk ÍFR ha... Lesa meira

getraunir

Getraunaseðlar á meðan á HM stendur

HM seðlar á mánudögum koma í stað Sunnudagsseðlanna í Getraunadeildinni. Allir HM seðlar eru með 65 milljónir tryggðar fyrir 13 rétta.

getraunir

Tipparar á skotskónum

Sá óvenjulegi atburður átti sér stað á sunnudags getraunaseðlinum að sami tipparinn var með alla leikina 13 rétta á tveim getraunaseðlum. Tipparinn sem styður Þrótt í Reykjavík fékk því í sinn hlut tvöfalda vinningsupphæðina eða rúmlega 700 þúsund krónur. Tveir tipparar voru með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum síðast... Lesa meira

getraunir

Sunnudagsseðill lokar á laugardegi

Tipparar athugið að lokunartíma getraunaseðlanna í þessari viku og þeirri næstu verður víxlað. Þannig lokar Sunnudagsseðillinn laugardaginn 16. maí  og Enski seðillinn sem lokar venjulega á laugardegi, lokar ekki fyrr en sunnudaginn 17. maí. Er þetta gert þar sem umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram á sunnudeginum... Lesa meira

getraunir

Þrír með 13 rétta í Enska

Þrír glúrnir tipparar voru með 13 leiki rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og fá þeir í sinn hlut um 650 þúsund krónur. Einn tipparanna styður við bakið á Fjölni, annar við Víking og sá þriðji styður Breiðablik.

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir