Enginn var með 1. vinning í Vikinglotto útdrætti kvöldsins en tveir miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og fær hvor þeirra rúmar 17, 8 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Finnlandi og Noregi. Þá var einn heppinn miðahafi með hinn al-íslenska 3. vinning og fær hann 3,7 milljónir króna í vinning. Miðann góða keypti hann á N1 í Ártúnshöfða.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker útdrætti kvöldsins en einn heppinn miðahafi var með 2. vinning og fær hann 125 þúsund krónur í vinning. Miðann keypti hann í Lottó appinu.
Fréttir
vikinglotto
Úrslit í Vikinglotto 19. ágúst
19. Aug 2026, 17:51