Enginn var með 1. vinning í Vikinglottó kvöldsins en þrír heppnir Norðmenn skipta með sér 2. vinning sem færir þeim rúmar 103 milljónir króna.
Einn heppinn miðaeigandi var með hinn al-íslenska 3. vinning sem er að þessu sinni rúmar 3,7 milljónir króna. Miðinn var keyptur í Vídeómarkaðinum í Kópavogi. Einnig fór 4. vinningur út en einn heppinn miðaeigandi, sem keypti miðann sinn í Lottó appinu, fær rúmar 470 þúsund krónur fyrir það.
Einn var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker útdrætti kvöldsins sem færir honum 2 milljónir króna í vasann. Hinn heppni keypti miðann sinn í Hagkaup í Spöng. Þá voru fjórir með 2. vinning og fá þeir 100 þúsund krónur í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur í Lottó appinu og þrír eru í áskrift.