Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni en sex miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 43,6 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir Grikklandi, Póllandi, Danmörku og þrír í Þýskalandi. Fjórir miðahafar voru með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 36,9 milljónir króna í sinn hlut. Stálheppinn Íslendingur er einn af þessum fjórum miðahöfum og var sá miði keyptur í Appinu. Einn miði var svo keyptur í Svíþjóð og tveir í Þýskalandi.
Hvorki 1. né 2. vinningur gekk út í Jóker útdrætti kvöldsins.
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 3.194.