Fréttir

eurojackpot

Endurvaldi tölurnar og endaði með milljónir !!

20. Jun 2025, 13:21

Þriðjudaginn 17. júní, á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga, hlaut heppinn Íslendingur glæsilegan vinning í EuroJackpot – rúmar 35 milljónir króna!

Vinningshafinn, sem er kona, keypti sjálfvalsmiða í gegnum Lottóappið og ákvað að hreinsa út tölurnar sem komu fyrst upp og fá nýjar í staðinn. Sú ákvörðun reyndist sannarlega skynsöm – því hún var ein af sex heppnum Evrópubúum sem skiptu með sér öðrum vinningi.

„Ég trúði þessu varla þegar símtalið kom frá Íslenskri getspá,“ segir hún og bætir við að það hafi verið frekar erfitt að klára vinnudaginn eftir slíkar fréttir. Hún ákvað þó að bíða með að segja manninum sínum frá vinningnum þar til þau voru komin heim – svo hann gæti allavega lokið sínum degi í ró og næði.

Hjónin, sem eru rík af börnum og barnabörnum, sjá fyrir sér að nota vinninginn í skemmtilegt fjölskyldufrí þar sem allir geta notið saman. „Það er dásamlegt að geta deilt svona gleði með sínum nánustu,“ bætir hún við.

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 6. október

Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í EuroJackpot útdrætti kvöldsins en 11 miðahafar skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 120 milljónir króna. Sex miðanna voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Danmörku, tveir í Tékklandi og einn í Noregi. Þá voru 16 miðahafar sem skiptu með sér 3. vinning og fær hve... Lesa meira

eurojackpot

EuroJackpot - enginn með 1. vinning!

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot kvöldins en sex skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 76,8 milljónir. Þrír miðar voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Danmörku og einn í Póllandi.  Þá voru 10 miðahafar sem skiptu með sér 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 26 milljónir.  Sjö miðar voru keyptir í Þýska... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 29. september 2026

Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í Eurojackpot útdrætti kvöldsins en tveir miðahafar skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra rúmlega 155 milljónir króna í vinning. Annar miðanna var keyptur í Þýskalandi og hinn í Danmörku. Þá voru níu miðahafar sem skiptu með sér 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 19 ... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 25. september

Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni í Eurojackpott útdrætti kvöldsins en fjórir miðahafar skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra 85,7 milljónir króna í vinning. Þrír miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn í Hollandi.Þá voru 13 miðahafar sem skiptu með sér 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 14 milljón... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 22. september

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld en fjórir miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmar 59 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Noregi, Tékklandi og tveir í Þýskalandi. Þá voru fimm miðahafar með 3. vinning og fá þeir rúmar 27 milljónir hver. Einn miði var keyptur í Slóveníu, tvei... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir