Fyrsti vinningur gekk ekki út í EuroJackpot að þessu sinni. Íslendingur, sem keypti sér miða í Lottó appinu, er meðal þeirra fimm miðahafa sem skiptu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra rétt rúmar 45 milljónir króna í vinning. Hinir miðarnir voru keyptir í Hollandi og þrír í Þýskalandi. Þá voru fjórir miðahafar sem skiptu með sér 3. vinning og fær hver þeirra 32 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Þýskalandi, Eistlandi, Svíþjóð og Finnlandi.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en einn heppinn miðahafi var með 2. vinning og fær hann 125 þúsund krónur í vinning. Miðann keypti hann í N1 í Reykjanesbæ.
Fréttir
eurojackpot
EuroJackpot 21 júlí - annar vinningur til Íslands!
21. Jul 2026, 19:43