Hvorki 1.né 2. vinningur gengu út í útdrætti kvöldsins í Vikinglottó en tveir heppnir miðahafar voru með hinn al-íslenska 3. vinning og fær hvor þeirra rúmar 957.000 krónur í vinning. Annar miðanna var keyptur á vef okkar lotto.is en hinn er í áskrift.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en fjórir miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125.000 krónur í sinn hlut. Einn vinningsmiðinn var keyptur á vef okkar lotto.is og þrír miðanna eru í áskrift.