Fyrsti vinningur gekk ekki út í útdrætti kvöldsins. Einn stálheppinn miðahafi í Noregi var með 2. vinning og fær hann rúmar 208 milljónir króna í sinn hlut. Hollendingur var svo einn með 3. vinning og fær hann rúmar 117 milljónir króna í sinn hlut.
Enginn var með allar Jókertölurnar réttar og í réttri röð í Jókernum en einn heppinn áskrifandi var með 2. vinning og hlýtur 100.000 krónur í vinning.
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 2.279.