Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni en tveir miðahafar skiptu með sér 2. vinning og hlýtur hvor þeirra rúmar 296 milljónir króna. Annar miðinn var keyptur í Þýskalandi og sá seinni á Spáni. Þá voru 10 miðahafar sem skiptu með sér 3. vinning og fær hver þeirra 21 milljón króna. Sex miðanna voru keyptir í Þýskalandi og hinir fjórir miðarnir voru keyptir í Eistlandi,Noregi, Spáni og í Finnlandi.
Heppinn íslendingur var á meðal þeirra 40 sem voru með 4. vinning og fær hann rúmar 866 þúsund krónur í vinning. Miðann keypti hann á heimasíðu okkar, lotto.is
Heppinn áskrifandi var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum og hlýtur hann 2 milljónir króna í vinning. Þá voru fimm miðahafar með 4 réttar tölur og í réttri röð og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur. Tveir miðanna eru í áskrift, tveir miðanna voru keyptir í Lottó appinu og fimmti miðinn var keyptur í Orkunni Fitjum í Reykjanesbæ.