Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins en tveir heppnir miðahafar voru með 2. vinning og fá þeir rúmar 86,5 milljónir króna hvor. Miðarnir voru keyptir í Finnlandi og Póllandi. Þá voru tíu miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra tæpar 10 milljónir í sinn hlut. Sjö miðanna voru keyptir í Þýskalandi, tveir á Spáni og einn í Finnlandi.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en einn miðahafi var með 2. vinning og fær 100.000 krónur í vasann. Miðinn var keyptur á vef okkar lotto.is.