Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í Vikinglotto útdrætti kvöldsins en einn stálheppinn áskrifandi var með hinn al-íslenska 3. vinning og fær hann rúmar 1,6 milljón króna í vinning.
Heppinn miðahafi var með allar Jókertölurnar réttar og í réttri röð og fær hann 2,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn góði var keyptur hjá N1 á Sauðárkróki. Fjórir voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur í vinning. Einn miði var keyptur í Lottó appinu og þrír miðar eru í áskrift.