Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í útdrætti kvöldsins en einn heppinn áskrifandi var með hinn al-íslenska 3. vinning og fær fyrir það rúma 1,6 milljónir króna.
Einn heppinn miðahafi var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum og fær tvær milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Lottó appinu. Þá voru fjórir miðhafar með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir á N1 í Garðabæ, í Hagkaup á Eiðistorgi og tveir miðanna eru í áskrift.