Fyrsti vinningur gekk ekki út í útdrætti kvöldsins í EuroJackpot en þrír heppnir miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra tæpa 97,1 milljón króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Finnlandi, Þýskalandi og á Ítalíu. Þá voru níu miðahafar með 3. vinning og hlýtur hver þeirra rúmar 18,2 milljónir króna í vinning. Miðarnir voru keyptir á Ítalíu, í Svíþjóð, fjórir miðanna í Þýskalandi og þrír í Danmörku.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fær hvor þeirra 125.000 krónur í vinning. Annar miðinn var keyptur á vef okkar lotto.is en hinn er í áskrift.