Fréttir

getraunir

Þróttari vann 11.6 milljónir á Enska

24. Nov 2025, 10:57

 Glúrinn tippari var með alla 13 leikina rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og fær rétt tæpar 11.6 milljónir króna í sinn hlut.
Tipparinn keypti sparnaðarkerfi S-0-10-128 sem gerði honum kleift að tvítryggja 10 leiki og setja eitt merki á 3 leiki. Tipparinn keypti þannig 128 raðir sem kostuðu 1.664 krónur.Tipparinn styður Þrótt í Reykjavík.
Íslenskar getraunir óska tipparanum til hamingju með vinninginn. 

getraunir

Tveir hjá ÍFR með 13 rétta

Þrír tipparar voru með 13 rétta á laugardagsseðlinum í Getraunum og fær hver þeirra rúma milljón króna í sinn hlut. Einn seðillinn var keyptur í félagakerfi Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík og  vinningsseðill númer tvö var keyptur af stuðningsmanni Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík. Má því segja að félagsfólk ÍFR ha... Lesa meira

getraunir

Getraunaseðlar á meðan á HM stendur

HM seðlar á mánudögum koma í stað Sunnudagsseðlanna í Getraunadeildinni. Allir HM seðlar eru með 65 milljónir tryggðar fyrir 13 rétta.

getraunir

Tipparar á skotskónum

Sá óvenjulegi atburður átti sér stað á sunnudags getraunaseðlinum að sami tipparinn var með alla leikina 13 rétta á tveim getraunaseðlum. Tipparinn sem styður Þrótt í Reykjavík fékk því í sinn hlut tvöfalda vinningsupphæðina eða rúmlega 700 þúsund krónur. Tveir tipparar voru með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum síðast... Lesa meira

getraunir

Sunnudagsseðill lokar á laugardegi

Tipparar athugið að lokunartíma getraunaseðlanna í þessari viku og þeirri næstu verður víxlað. Þannig lokar Sunnudagsseðillinn laugardaginn 16. maí  og Enski seðillinn sem lokar venjulega á laugardegi, lokar ekki fyrr en sunnudaginn 17. maí. Er þetta gert þar sem umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram á sunnudeginum... Lesa meira

getraunir

Þrír með 13 rétta í Enska

Þrír glúrnir tipparar voru með 13 leiki rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og fá þeir í sinn hlut um 650 þúsund krónur. Einn tipparanna styður við bakið á Fjölni, annar við Víking og sá þriðji styður Breiðablik.

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir