Fyrsti vinningur í EuroJackpot gekk ekki út í útdrætti kvöldsins. Þrír miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 103,2 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Eistlandi, Þýskalandi og Svíþjóð. Fjórir miðahafar voru með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 43,6 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Spáni og tveir í Þýskalandi.
Enginn var með allar Jókertölurnar réttar og í réttri röð í Jókernum en þrír voru með 2. vinning og fá 100.000 krónur í vinning hver. Miðarnir voru keyptir í Bus Station, Þönglabakka í Reykjavík, á lotto.is og einn miði er í áskrift.
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 2.986.