Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins en tveir heppnir miðahafar frá Danmörku og Noregi skiptu með sér 2. vinning og fá rúmar 9 milljónir króna hvor. Hin al-íslenski 3. vinningur gekk að vísu út og færir hann hinum heppna rúmar 1,8 milljónir króna. Miðinn er í áskrift.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en tveir heppnir voru með annan vinning og hljóta því báðir 125 þúsund krónur. Einn miðinn var keyptur á Lotto.is og einn á lottó appinu.