Það hefur ekki farið fram hjá mörgum að enska úrvalsdeildin er hafin. Þá vakna margir tipparar til lífsins og tippa á Enska getraunaseðilinn á laugardögum. Húskerfi Grindavíkur hefur verið starfandi í mörg ár og gefst félagsmönnum tækifæri til að tippa á Enska getraunaseðilinn. Um síðustu helgi voru seldir 47 hlutir á 1.500 krónur hver. Húskerfið sló í gegn og fékk 13 rétta. Vinningsupphæðin er 3,9 milljónir króna eða tæpar 83 þúsund krónur á hvern hlut sem er 55 föld ávöxtun. Þar að auki skilar starfsemi húsfélagsins beinum tekjum til Grindavíkur þar sem 26% af upphæðinni sem tippað er fyrir hverju sinni, rennur til félagsins. Stjórnendur húskerfis Grindavíkur hafa staðið sig vel í gegnum árin og hefur félagið all oft fengið 13 rétta.
Tengdar fréttir
getraunir
Þrír tipparar voru með 13 rétta á laugardagsseðlinum í Getraunum og fær hver þeirra rúma milljón króna í sinn hlut. Einn seðillinn var keyptur í félagakerfi Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík og vinningsseðill númer tvö var keyptur af stuðningsmanni Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík. Má því segja að félagsfólk ÍFR ha... Lesa meira
getraunir
HM seðlar á mánudögum koma í stað Sunnudagsseðlanna í Getraunadeildinni. Allir HM seðlar eru með 65 milljónir tryggðar fyrir 13 rétta.
getraunir
Sá óvenjulegi atburður átti sér stað á sunnudags getraunaseðlinum að sami tipparinn var með alla leikina 13 rétta á tveim getraunaseðlum. Tipparinn sem styður Þrótt í Reykjavík fékk því í sinn hlut tvöfalda vinningsupphæðina eða rúmlega 700 þúsund krónur. Tveir tipparar voru með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum síðast... Lesa meira
getraunir
Tipparar athugið að lokunartíma getraunaseðlanna í þessari viku og þeirri næstu verður víxlað. Þannig lokar Sunnudagsseðillinn laugardaginn 16. maí og Enski seðillinn sem lokar venjulega á laugardegi, lokar ekki fyrr en sunnudaginn 17. maí. Er þetta gert þar sem umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram á sunnudeginum... Lesa meira
getraunir
Þrír glúrnir tipparar voru með 13 leiki rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og fá þeir í sinn hlut um 650 þúsund krónur. Einn tipparanna styður við bakið á Fjölni, annar við Víking og sá þriðji styður Breiðablik.