Enginn náði að landa 1. vinningi þessa vikuna en einn heppinn Norðmaður var með 2. vinning sem færir honum rúmlega 1 milljarð króna.
Enginn var með 1. vinning í Jókernum en sex voru með 2. vinning og fá þeir 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir á AK-INN Akureyri, N1 Gagnvegi, Skálanum Þorlákshöfn, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, einn var keyptur í Lottó appinu og einn er í áskrift.