Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins en einn heppinn miðahafi var með 2. vinning og fær hann tæpar 270 milljónir króna. Miðinn var keyptur í Póllandi. Þá voru fimm miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 30 milljónir í sinn hlut. Tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi, einn í Króatíu, einn í Svíþjóð og einn í Póllandi.
Enginn var með 1. né 2. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins.