Íslensk getspá er með aukaleik frá og með 26. nóvember til klukkan 18:40 þann 23. desember. Dregnir verða út 23 aukavinningar þann 23. desember, hver vinningur er EIN MILLJÓN króna.
Leikurinn hefst sunnudaginn 26. nóvember.
Allir þeir sem kaupa 10 raðir í Lottó, Vikinglotto eða EuroJackpot á netinu, í lottóappinu eða á sölustöðum verða sjálfkrafa þátttakendur í Milljólaleiknum. Á sölustöðum fylgir sérstakur lukkumiði sem þátttakendur verða að passa vel upp á en á vefnum og í appinu kemur sérstakt lukkunúmer á miða sem eru með í leiknum. Allir áskrifendur verða einnig sjálfkrafa þátttakendur, óháð fjölda raða í áskrift. Möguleikarnir aukast verulega með því að vera með áskrift því þá ferð þú í pottinn í hverri viku þangað til við drögum.
Haft verður samband við vinningshafa úr hópi áskrifenda og þá sem kaupa miða á netinu eða í lottóappinu. Aðrir vinningshafar verða að geyma lukkumiðann sinn vel og framvísa til Íslenskrar getspár fyrir 23. desember 2024