Stálheppinn miðaeigandi í Tékklandi var einn með 1. vinning í EuroJackpot og fær hann rúmlega 17 milljarða króna í sinn hlut. Fjórir Þjóðverjar og einn Norðmaður skiptu með sér 2. vinningi fá þeir tæplega 577 milljónir hver. Þá voru átjan miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rétt tæpar 14 milljónir króna. Ellefu miðar voru keyptir í Þýskalandi, tveir í Danmörku, tveir í Svíþjóð og einn í Póllandi, Slóvakíu og Slóveníu.
Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í Jóker útdrættinum að þessu sinni.