Íslenskir tipparar byrja vel í getraunum nú þegar enski boltinn er kominn á fullt. Síðastliðinn laugardag voru fimm tipparar með 13 rétta og fær hver í sinn hlut vinning allt frá 700 þúsund krónum og upp í rúmar 900 þúsund krónur. Tippararnir styðja meðal annars við bakið á FH, ÍBV, Austra Eskifirði og Golfklúbb Vatnsleysustrandar.
Tengdar fréttir
getraunir
Það hefur ekki farið fram hjá mörgum að enska úrvalsdeildin er hafin. Þá vakna margir tipparar til lífsins og tippa á Enska getraunaseðilinn á laugardögum. Húskerfi Grindavíkur hefur verið starfandi í mörg ár og gefst félagsmönnum tækifæri til að tippa á Enska getraunaseðilinn. Um síðustu helgi voru seldir 47 hlutir á ... Lesa meira
getraunir
Við hjá Íslenskum getraunum þökkum forseta ÍSÍ fyrir að vekja máls á þessum vanda. Umræða um áhrif íþróttaveðmála, sérstaklega á ungt fólk, er nauðsynleg og tímabær. Ábyrg spilun er okkur hjartans mál. Við nýtum aldurstakmörk, sjálfsútilokun, opnunartíma og eyðslutakmörk til að stuðla að heilbrigðu umhverfi. Það er kom... Lesa meira
getraunir
Vinsamlega athugið að lokunartími á Enska getraunaseðlinum er sunnudagurinn 22 júní kl. 13.00 en ekki laugardagurinn 21 júní. Sunnudagsseðillinn (Evrópuseðillinn) lokar laugardaginn 21 júní kl. 13.00 en ekki á sunnudag eins og venja er til.
getraunir
Lokaumferðin í enska boltanum var leikin í gær, sunnudag. Tipparar á Íslandi reyndust á skotskónum og voru fjórir þeirra með alla leikina 13 rétta á Enska getraunaseðlinum. Fær hver þeirra í vinning um 1.5 milljónir króna. Þrír tipparana styðja við bakið á íþróttafélögum á Íslandi og eru þau Haukar, Keflavík og Golfklú... Lesa meira
getraunir
Einn íslenskur tippari var með alla leikina 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum og fær hann í sinn hlut rúmar 500 þúsund krónur. Tipparinn keypti opinn seðil með þrjá þrítryggða leiki, 6 tvítryggða og fjóra með einu merki.