Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í Vikinglotto útdrætti kvöldsins en tveir miðahafar voru með hinn al-íslenska bónusvinning og fá þeir hvor um sig rúmar 871 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Olís Ánanaust í Reykjavík og í Fjarðarkaup í Hafnarfirði.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker útdrætti kvöldsins en einn heppinn miðahafi sem keypti miða sinn í Lottó appinu, var með 2. vinning og hlýtur hann 100 þúsund krónur í vinning.