Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins í Vikinglottó en þrír miðahafar voru með 2. vinning og hlýtur hver þeirra rúmar 11 millljónir króna í vinning. Tveir miðanna voru keyptir í Danmörku og einn í Noregi. Þá var einn miðahafi með hinn al-íslenska 3. vinning og fær hann rétt rúmar 1,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Lottó appinu.
Heppinn áskrifandi var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum og fær 2,5 milljónir króna í vinning. Fjórir miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 125.000 krónur í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Shellskálanum í Hveragerði, tveir á vef okkar lotto.is og einn miðinn er í áskrift.