Fyrsti vinningur gekk ekki út í útdrætti kvöldsins en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fær hvor þeirra rúmar 173,5 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Danmörku og Noregi. Þá voru þrír heppnir miðahafar með hinn al-íslenska bónusvinning og fær hver þeirra tæpar 600.000 krónur í sinn hlut. Einn miðanna var keyptur í Lotto appinu og tveir á vef okkar lotto.is.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fá þeir 100.000 krónur hvor. Annar miðinn var keyptur á vef okkar lotto.is en hinn miðinn er í áskrift.