Fréttir

lotto

vikinglotto

eurojackpot

Milljólaleikur Getspár 2025

29. Nov 2025, 21:31

Jólaleikur Íslenskrar getspár

Íslensk getspá er með aukaleik frá og með 30. nóvember til klukkan 18:40 þann 27. desember.  Dregnir verða út 27 aukavinningar þann 27. desember, hver vinningur er EIN MILLJÓN króna.

Leikurinn hefst sunnudaginn 30. nóvember

Allir þeir sem kaupa 10 raðir í Lottó, Vikinglotto eða EuroJackpot á netinu, í appinu eða á sölustöðum verða sjálfkrafa þátttakendur í Milljólaleiknum. Á sölustöðum fylgir sérstakur lukkumiði sem þátttakendur verða að passa vel upp á en á netinu og í appinu kemur lukkunúmerið fram á miðanum. Allir áskrifendur verða einnig sjálfkrafa þátttakendur, óháð fjölda raða í áskrift*.

Haft verður samband við vinningshafa úr hópi áskrifenda og þá sem kaupa miða á netinu eða í appinu. Aðrir vinningshafar verða að geyma lukkumiðann sinn vel og framvísa til Íslenskrar getspár fyrir 27. desember 2026.

Vinningsnúmer verða birt á vef Íslenskrar getspár.

Dregið verður 27. desember 2025.

Athugið:

•    Lukkunúmerin gilda aðeins 27. desember 2025.

•    Miðar sem innihalda 10 raðir eru með í leiknum, einnig kerfismiðar og miðar sem innihalda Jóker ef verðgildi miða er a.m.k. á við 10 raða miða í viðkomandi leik.

•    Margviknamiðar sem uppfylla ofangreint og eru keyptir eftir að leikurinn hefst (miðnætti 1. desember) fá lukkunúmer sem fer í pottinn jafn oft og miðinn gildir fram að útdráttardegi.

•    Allir áskriftarmiðar eru með í pottinum – óháð fjölda raða í áskrift*.

•    Vinningsnúmer eru birt á lotto.is

•    Til að vitja vinninga þarf að framvísa lukkumiðanum til Íslenskrar getspár fyrir 27. desember 2026.

Dæmi: 10 raða seðill í Lottó kostar 1.500 krónur og því fylgir lukkunúmer með þeim miða.

* Dæmi: Jóna er með 10 raðir í áskrift í Lottó og 8 raðir í Vikinglotto og 3 raðir í EuroJackpot á föstudögum.  Tölvukerfi Getspár útvegar Jónu sérstakt lukkunúmer fyrir hvern áskriftarmiða í hverjum útdrætti. Jóna fær því samtals 4 lukkunúmer fyrir EuroJackpot áskriftarmiðann sinn (5. 12. 19. og 26. desember) 4 lukkunúmer fyrir Lotto áskriftarmiðann sinn (6. 13. 20. og 27. desember) og 4 lukkunúmer fyrir Vikinglotto áskriftarmiðann sinn (3. 10. 17. og 24. desember).

lotto

Lottó - enginn með 1. vinning

Lottópotturinn stækkar þar sem hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn fóru út í Lottó útdrætti kvöldsins. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en níu voru 2. vinning fær hver þeirra 125 þúsund krónur.  Fjórir miðar voru keyptir í Lottó appinu, þrír á lotto.is og tveir eru í áskrift.

eurojackpot

EuroJackpot - 3. vinningur á Íslandi!

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot kvöldsins en sex skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 75,5 milljónir. Fjórir miðar voru keyptir í Þýskalandi, einn á Spáni og einn í Króatíu. Þá voru 15 með 3. vinning og þar á meðal einn íslenskur miðahafi. Hver þeirra fær tæpar 10 milljónir króna. 11 miðar voru ke... Lesa meira

vikinglotto

Vikinglotto 8. júlí - 1. vinningur til Noregs!

Stálheppinn Norðmaður var einn með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og fær hann í sinn hlut rúmlega 3.566 milljónir króna. Hvorki 2. né hinn al-íslenski 3. vinningur gengu út að þessu sinni. Heppinn áskrifandi var með allar Jókertölurnar réttar og í réttri röð og fær hann 2,5 milljónir í sinn hlut. Fjórir voru voru með ... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 7. júlí

Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í EuroJackpot útdrætti kvöldsins. Heppinn Þjóðverji var einn með 3. vinning og fær hann 109 milljónir króna í vinning. Jókerinn gekk ekki út að þessu sinni.

lotto

Fjórfaldur pottur næst - Úrslit í Lottó 4. júlí 2026

Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Einn heppinn áskrifandi var með bónusvinninginn og fær hann tæplega 1,2 milljón krónur  í vasann. Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir, miðinn var keyptur í Lottó appinu. Þá voru fimm... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir