Fréttir

getraunir

1X2 seðlar víxlast um næstu helgi

29. Dec 2025, 15:34

Getraunaseðlar í boði fyrir viku 1. 2026 eru þessir:
Evrópuseðillinn (Miðvikudagsseðill) verður 1. janúar.
Evrópuseðillinn (Sunnudagsseðill) verður laugardaginn 3. janúar.
Enski Seðillinn verður sunnudaginn 4. janúar.

Athygli tippara er vakin á því að í viku 1 á árinu 2026 munu Enski seðillinn og Evrópuseðillinn (Sunnudagsseðillinn) víxlast þannig að Evrópuseðillinn lokar á laugardeginum 3. janúar og Enski seðillinn lokar á sunnudeginum 4. janúar. 

getraunir

Tveir hjá ÍFR með 13 rétta

Þrír tipparar voru með 13 rétta á laugardagsseðlinum í Getraunum og fær hver þeirra rúma milljón króna í sinn hlut. Einn seðillinn var keyptur í félagakerfi Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík og  vinningsseðill númer tvö var keyptur af stuðningsmanni Íþróttafélags Fatlaðra í Reykjavík. Má því segja að félagsfólk ÍFR ha... Lesa meira

getraunir

Getraunaseðlar á meðan á HM stendur

HM seðlar á mánudögum koma í stað Sunnudagsseðlanna í Getraunadeildinni. Allir HM seðlar eru með 65 milljónir tryggðar fyrir 13 rétta.

getraunir

Tipparar á skotskónum

Sá óvenjulegi atburður átti sér stað á sunnudags getraunaseðlinum að sami tipparinn var með alla leikina 13 rétta á tveim getraunaseðlum. Tipparinn sem styður Þrótt í Reykjavík fékk því í sinn hlut tvöfalda vinningsupphæðina eða rúmlega 700 þúsund krónur. Tveir tipparar voru með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum síðast... Lesa meira

getraunir

Sunnudagsseðill lokar á laugardegi

Tipparar athugið að lokunartíma getraunaseðlanna í þessari viku og þeirri næstu verður víxlað. Þannig lokar Sunnudagsseðillinn laugardaginn 16. maí  og Enski seðillinn sem lokar venjulega á laugardegi, lokar ekki fyrr en sunnudaginn 17. maí. Er þetta gert þar sem umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram á sunnudeginum... Lesa meira

getraunir

Þrír með 13 rétta í Enska

Þrír glúrnir tipparar voru með 13 leiki rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og fá þeir í sinn hlut um 650 þúsund krónur. Einn tipparanna styður við bakið á Fjölni, annar við Víking og sá þriðji styður Breiðablik.

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir