Fyrsti vinningur gekk ekki út í kvöld en fimm heppnir miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 45,8 milljónir króna í sinn hlut. Fjórir miðar voru keyptir í Þýskalandi og einn í Svíþjóð. Tólf miðahafar skiptu svo með sér 3. vinningi og fær hver þeirra rúmar 10,7 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Póllandi, Spáni, tveir í Finnlandi, fjórir í Noregi og fjórir í Þýskalandi.
Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í Jóker útdrætti kvöldsins.
Heildarfjöldi vinninga á Íslandi var 2.912.