Enginn var með 1. vinning í Vikinglotto í kvöld en einn heppinn Norðmaður var með 2. vinning. Sá heppni fær rúmar 56 milljónir í vinning. Þá var einn miðahafi með hinn al-íslenska 3. vinning og fær rúmlega 9,8 milljónir króna í sinn hlut. Sá keypti miðann í Lottó appinu.
Enginn var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker en fimm miðahafar voru með 2. vinninginn. Hver og einn þeirra fær 125 þúsund krónur í sinn hlut. Þrír eru í áskrift, einn miði var keyptur í Mini Market, Drafnarfelli og sá fimmti í Lottó appinu.